send link to app

Ást og Friður app for iPhone and iPad


4.6 ( 8576 ratings )
Music Lifestyle
Developer: Genium ehf
Free
Current version: 1.1, last update: 7 years ago
First release : 20 Nov 2014
App size: 110.86 Mb

Núvitund er að verða var við hvað er að gerast, á meðan það gerist , án þess að forgangsraða. Þannig móta innri og ytri aðstæður skynjun okkar og upplifun.

Áður en við hefjum hugleiðsluna er mikilvægt að byrja á því að skoða líkamsstöðu okkar, því hún hefur áhrif á hugann. Hér skiptir mestu að vel fari um líkamann og að bakið sé beint. Næst er hugað að jarðtengingu, að finna fyrir tengslum á milli líkama og jarðar vegna áhrifa frá aðdráttaraflinu. Loks beinum við athyglinni að tengingu við núvitundarstoðirnar sem eru þrjár talsins:

1. Líkamsvitund, að finna fyrir líkama sínum núna
2. Hljóðheimur, allt sem við heyrum hið ytra núna
3. Öndun, við öndum núna

Lagt er upp með tvær hugleiðsluæfingar sem eru núvitundar- og kærleikshugleiðsla.

Í núvitundarhugleiðslu eru allir ofantaldir þættir iðkaðir og í kærleikshugleiðslu ræktum við með okkur sjálfskærleik og kærleik til annara

Auk hugleiðsluæfinga býður Ást og friður upp á slökun í tónheimum Begga Morthens sem kallast Hugarró. Einnig er að finna staðhæfingar og ljóðmælgi fyrir hvern dag notendum til upplyftingar, gagns og gamans.

Það er von mín að Ást og friður muni þróast með notendum sínum. Af þeim sökum eru allar ábendingar vel þegnar.

Ást og Friður.
Tolli

[email protected]
www.tolli.is